Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. júlí 2019 17:45
Magnús Már Einarsson
Wolves kaupir Dendoncker (Staðfest)
Áfram hjá Úlfunum.
Áfram hjá Úlfunum.
Mynd: Getty Images
Wolves hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Leander Dendoncker en hann kemur til félagisns frá Anderlecht.

Hinn 24 ára gamli Dendoncker var á láni hjá Wolves á síðasta tímabili en hann skoraði tvö mörk í nítján leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Dendoncker hjálpaði Wolves að ná Evrópusæti en nýliðarnir enduðu í sjöunda sæti á tímabilinu.

Þá spilaði Belginn einnig með Úlfunum í enska bikarnum þar sem liðið fór í undanúrslit.

Wolves var með klásúlu um möguleg kaup á Dendoncker og félagið ákvað að nýta sér þá klásúlu.
Athugasemdir
banner