01.07.21 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Engels til Antwerp (staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Björn Engels hefur skrifað undir samning við belgíska liðið Royal Antwerp.
Þessi 26 ára gamli varnarmaður gekk í raðir Aston Villa frá franska liðinu Reims eftir að liðið komst upp í Ensku Úrvalsdeildina árið 2019.
Hann var lykilmaður í vörn liðsins við hlið landsliðsmannsins Tyrone Mings tímabilið 2019/20. Hann missti hinsvegar sætið sitt eftir að þriggja mánaða hlé var gert á deildinni vegna COVID-19.
Hann hefur ekki leikið með Aston Villa síðan í mars.
Engels gerir þriggja ára samning við Antwerp.