01.07.21 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fjarðabyggð nælir í tvo Búlgara (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð hefur ekki enn unnið leik í 2. deildinni í sumar en félagið hefur ekki sagt sitt síðasta, svo sannarlega ekki.
Félagaskiptaglugginn var að opna og Fjarðabyggð er strax farið að láta til sín taka á markaðnum.
Fjarðabyggð hefur bætt við sig tveimur leikmönnum sem koma báðir frá Búlgaríu.
Georgi Slavchev er fæddur árið 1999 og er nokkuð hávaxinn sóknarmaður. Hann á að baki tvo leiki fyrir U17 landslið Búlgaríu. Hinn leikmaðurinn heitir Lachezar Stankov Georgiev og er fæddur árið 2000.
Þessir leikmenn eru fengnir til að hjálpa Fjarðabyggð í baráttunni um að halda sér uppi í 2. deild.