01.07.21 - 18:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Höttur/Huginn fær einn Spánverja í viðbót (Staðfest)

Úr leik hjá Hetti/Hugin á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Höttur/Huginn, topplið 3. deildar karla, ætlar sér að fara upp um deild í sumar.
Þeir eru heldur betur að styrkja sig í félagaskiptaglugganum sem var að opna.
Félagið er núna búið að bæta við sig tveimur Spánverjum frá því að glugginn opnaði.
Við sögðum frá því fyrir tæpri viku að félagið væri búið að semja við sóknarmanninn Manu Torres. „Við fáum Manu inn þegar glugginn opnar en það er öflugur framherji frá Spáni sem við berum miklar væntingar til. Hann hefur verið að spila í neðri deildunum á Spáni og var markakóngur á síðasta tímabili í sinni deild," sagði Brynjar Árnason, þjálfari Hattar/Hugins, um Torres.
Hinn spænski Ion Perelló Machi var mjög öflugur í upphafi tímabils en hann meiddist og verður að öllum líkindum ekki meira með á tímabilinu.
Til að fylla alveg upp í skarðið sem Machi skilur eftir sig, og gott betur en það, þá er félagið einnig búið að semja við Ignacio Poveda Gaona.
Hann spilaði með Leikni Fáskrúðsfirði í 1. deild 2016. Hann er 31 árs gamall kantmaður sem á að hjálpa liðinu að komast upp.