01.07.21 - 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marco Silva tekinn við Fulham (Staðfest)

Marco Silva.

Mynd: Getty Images

Marco Silva.

Mynd: Getty Images
Fulham hefur ráðið nýjan knattspyrnustjóra; Portúgalinn Marco Silva er tekinn við liðinu.
Scott Parker hætti með Fulham á dögunum til að taka við Bournemouth.

Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og fær Silva það verkefni að koma liðinu beinustu leið aftur upp.
Silva er 43 ára gamall en hann er fyrrum stjóri Hull, Watford og Everton. Hann hefur verið án starfs í fótboltanum frá því hann var rekinn frá Everton 2019.
Silva stýrði Estoril, Sporting Lissabon og Olympiakos áður en hann hélt til Englands.
Hann skrifar undir þriggja ára samning við Fulham og verður Luis Boa Morte, sem var góður leikmaður fyrir Fulham, aðstoðarmaður hans.