01.07.21 - 09:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikkel Qvist aftur í KA (Staðfest)

Qvist

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Qvist

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikkel Qvist sem lék með KA á láni í fyrra er mættur aftur í KA.
Þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni nú í morgun.
Qvist er miðvörður og kemur til með að fylla skarð Brynjars Inga Bjarnasonar sem fer til Ítalíu eftir næsta leik KA.

Qvist kemur á láni út leiktíðina frá HB Köge. Hann lék sautján leiki með KA í deild og bikar í fyrra og skoraði eitt mark.
„Mikkel sem er stór og stæðilegur, en hann er 26 ára gamall varnarmaður, er 203 cm á hæð.
Hann er fastur fyrir og öflugur í loftinu auk þess sem hann er líkamlega sterkur og getur kastað boltanum ansi langt í innköstum," segir í frétt KA.

Heimild: KA