Fotbolti.net
01.07.21 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spænskir bræður sameinaðir á Fáskrúðsfirði (Staðfest)

Izaro Abella Sanchez fær bróður sinn með sér á Fáskrúðsfjörð.

Izaro Abella Sanchez fær bróður sinn með sér á Fáskrúðsfjörð.

Canon

Mynd: Jóhanna Kr. Hauksdóttir

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur nælt í Spánverjann Aitor Abella Sanchez og hefur hann nú þegar spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Aitor kom inn af bekknum í gær þegar Leiknir F. tapaði á dramatískan hátt gegn KV í 2. deild.
Aitor Abella er yngri bróðir Izaro Abella Sanchez sem er einnig á mála hjá Leikni. Þeir eru núna sameinaðir á Fáskrúðsfirði og verður gaman að sjá hvernig þeir ná saman inn á vellinum.

Izaro er 25 ára gamall miðjumaður sem hefur spilað á Íslandi frá 2019. Hann hefur bæði spilað með Leikni F. og Þór Akureyri hér á Íslandi.

Aitor er 21 árs gamall og er að spila á Íslandi í fyrsta sinn. Hann getur leikið á kanti og miðju.

Leiknir F. situr í tíunda sæti 2. deildar eins og er.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.