01.07.21 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valur lánar Sigurð Dagsson í ÍR (Staðfest)

Mynd: Valur

Mynd: Valur
ÍR hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deild karla.
Sigurður Dagsson er kominn til félagsins á láni frá Val út tímabilið.

Sigurður er átján ára, kemur úr mikilli Valsfjölskyldu og er skírður í höfuðið á afa sínum sem er goðsögn hjá Val.
Sigurður hefur spilað einn keppnisleik með meistaraflokki Vals, í Pepsi Max-deildinni í fyrra.
Hann á sex leiki að baki fyrir meistaraflokk KH og á þrjá leiki að baki fyrir U16 landslið Íslands.
Faðir Sigurðar er handbolta goðsögnin Dagur Sigurðsson.
Árið 2018 æfði Sigurður hjá RB Leipzig í Þýskalandi.