banner
   fös 01. júlí 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Belotti farinn frá Torino
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Andrea Belotti hefur yfirgefið Torino en ítalska félagið tilkynnti það í dag að hann muni ekki skrifa undir nýjan samning.

Óvíst er hvað tekur við hjá hinum 28 ára gamla Belotti sem leikið hefur með Torin síðan 2015. Hann skoraði 100 mörk í 232 leikjum fyrir félagið.

Þá hefur hann leikið 44 landsleiki fyrir Ítalíu og skorað 12 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner