Fotbolti.net
17.11.26 - 19:27
Ívan Guðjón Baldursson

JJ Gabriel kveður Man Utd (Staðfest)

JJ Gabriel kveður Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

JJ Gabriel er búinn að kveðja Manchester United eftir rúm fjögur ár í akademíunni.
JJ Gabriel: Draumurinn er að vinna Ballon d'Or
TENGT EFNI

JJ Gabriel: Draumurinn er að vinna Ballon d'Or

Fregnirnar koma ekki á óvart enda er 16 ára Gabriel á leið til spænska risaveldisins Real Madrid.

Gabriel þykir einn af efnilegustu táningum heims um þessar mundir. Hann á tíu leiki að baki fyrir unglingalandslið Englands og sýndu öll stærstu félagslið Evrópu áhuga á að semja við hann, en að lokum varð Real Madrid fyrir valinu.

Mikið hefur verið rætt um Gabriel í fjölmiðlum síðustu mánuði og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með þróun hans í Madríd.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.