17.11.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Piqué: Verðskuldaði ekki tólf leikja bann

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gerard Piqué, eigandi FC Andorra sem leikur í næstefstu deild á Spáni, segir að markvörður liðsins hafi ekki átt skilið að vera dæmdur í tólf leikja bann eftir að hafa óvart orðið andstæðingi sínum að bana í byrjun nóvember.

TENGT EFNI
„Tólf leikja bann getur virst léttvægt"
Jesús Owono var kominn langt út úr vítateig mjög seint í uppbótartíma til að stöðva skyndisókn í leik Andorra gegn Tenerife en endaði á því að fara mjög harkalega í nafna sinn Jesús de Miguel, sem lést á spítala daginn eftir.
Owono fékk þyngstu mögulegu refsingu fyrir brot af þessu tagi, eða tólf leikja bann, og voru einhverjir sem kölluðu eftir þyngri refsingu í ljósi sérstakra aðstæðna. Piqué, sem var á sínum tíma lykilmaður hjá Barcelona og spænska landsliðinu, er ekki sammála.
„Ég tel rangt að gefa Jesús þyngstu refsingu fyrir þetta brot, það setur hann í stöðu sem hann á ekki skilið að vera í. Það er ekki honum að kenna hvernig fór," segir Piqué. „Það eru allir sammála um að þetta hafi verið mjög óheppilegt slys."
Piqué talaði svo um atvik sem átti sér stað í viðureign Albacete gegn Sabadell á tímabilinu, þegar José Corpas sparkaði óvart af miklum krafti í höfuðið á andstæðingi sínum sem missti meðvitund og fór á spítala. Corpas fékk beint rautt spjald og þriggja leikja bann sem var ekki lengt í ljósi þess að sparkið var óviljaverk.
„Sem betur fer fór ekki verr í því atviki. Það lést enginn og Corpas fékk þriggja leikja bann. Spurningin mín er því eftirfarandi: er verið að refsa fyrir brotið sjálft eða fyrir ófyrirséðar afleiðingar af brotinu?"
Owono er í molum eftir atvikið. Hann starfar náið með sálfræðiteymi og gaf ekki kost á sér með Miðbaugs-Gíneu í landsleikjahlénu þrátt fyrir að vera aðalmarkvörður landsliðsins.
„Jesús mun þurfa talsvert meira en 12 leiki til að jafna sig áður en hann getur spilað fótbolta aftur. Refsingin er táknræn og þess vegna er ég að gagnrýna hana. Sama hversu þung refsingin er þá mun það ekki færa okkur Jesús de Miguel aftur til okkar."

Gerard Piqué critica la sanción de 12 partidos a Jesús Owono e insiste en que fue un accidente.
— Terreno Viral (@terrenoviral) November 16, 2026
"La sanción de 12 partidos a Jesús Owono lo que hace es culpabilizarle de unas consecuencias de las que él no tuvo la culpa. La sanción tiene que ser por la acción, no por las consecuencias. En 2012 yo choqué con Víctor Valdés en una situación muy parecida, y no por eso él era el culpable. Y si hubiera pasado algo peor, tampoco lo hubiera sido. Los humanos muchas veces necesitamos culpar a alguien, porque si no, no podemos comprender por qué pasa esto en un terreno de juego. Es un accidente."

Mynd: EPA