17.11.26 - 23:31
Ívan Guðjón Baldursson
Marin Mudrazija farinn frá Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Króatíski framherjinn Marin Mudrazija ætlar ekki að gera nýjan samning við Keflavík eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liðinu síðustu tvö árin.
Marin skoraði 8 mörk í 25 leikjum er Keflavík komst upp úr Lengjudeildinni í fyrra og fylgdi því eftir með 4 mörkum í 22 leikjum á góðu tímabili í Bestu deildinni í sumar.
Marin er 31 árs gamall og hefur komið víða við á ferlinum. Hann hefur meðal annars leikið á Indlandi, Singapúr, Albaníu og Rúmeníu.
„Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Marin kærlega fyrir hans framlag til félagsins, bæði innan vallar sem utan, og óskar honum alls hins besta í framtíðinni," segir meðal annars í tilkynningu frá Keflavík.