Fotbolti.net
17.11.26 - 15:36
Kári Snorrason

Jói Berg segir starfshætti KSÍ lélega - „Hefði verið gaman að fá slíkt hið sama“

Á að baki 102 landsleiki.

Á að baki 102 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson skýtur föstum skotum á KSÍ í nýjasta hlaðvarpsþætti Sjöunnar.

Þar setur hann spurningamerki við heiðursathöfn EM hópsins sem fór fram í hálfleik í gær. Hann hefði viljað að KSÍ hefði gert meira úr athöfninni sem og kveðjustundar Arons Einars. Jóhann var ekki viðstaddur athöfnina þar sem hann er búsettur á Spáni.
Aron og gullkynslóðin heiðruð
TENGT EFNI

Aron og gullkynslóðin heiðruð

Þá segist Jóhann jafnframt ekki hafa fengið neina kveðju frá KSÍ þegar hann lagði skóna á hilluna fyrr á árinu.

„Þeir hjá KSÍ hafa ekkert haft persónulega samband við mig eftir að ég hætti í fótbolta. Ég var ekkert að pæla í því fyrr en ég sá á Instagram að Dagný (Brynjarsdóttir) var líka að hætta og hún fékk skemmtilega færslu. Það hefði verið gaman að fá slíkt hið sama,“ sagði Jóhann í þættinum og hélt áfram.

„En þetta er náttúrulega eitthvað sem KSÍ þarf að passa upp á. Eins og með þetta í gær þar sem á að heiðra menn vegna stærsta afreks í knattspyrnusögunni og svo Aron að hætta. Af hverju er ekki búið til eitthvað meira, af hverju er ekki frítt á völlinn? Fá fleiri og þetta gert almennilega,“ sagði Jói en 2644 áhorfendur voru á Laugardalsvelli í gær.

„Þetta er allt saman virkilega lélegt. Það er svo margt sem má gera miklu betur, sérstaklega þarna í gær og fyrir mig og aðra landsliðsmenn sem hætta. Það er oft talað um það,“ sagði Jói að lokum.



„Af hverju er ekki búið til eitthvað meira, af hverju er ekki frítt á völlinn?“

„Af hverju er ekki búið til eitthvað meira, af hverju er ekki frítt á völlinn?“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.