17.11.26 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Dramatísk endurkoma Norðmanna í Danmörku

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Síðustu keppnisleikjum landsleikjahlésins í Evrópu lauk þegar keppt var í Þjóðadeildinni í kvöld.
Tveir leikir fóru fram í A-deild þar sem Danmörk tók á móti Noregi í úrslitaleik um annað sæti riðilsins og komust heimamenn í tveggja marka forystu.
Rasmus Höjlund potaði boltanum í netið eftir slæm mistök Torbjörn Lysaker Heggem. Höjlund stal markinu af Heggem með að pota í boltann rétt áður en hann rúllaði yfir marklínuna á elleftu mínútu.
Skömmu síðar tvöfaldaði Pierre Emile-Höjbjerg forystuna með laglegum skalla eftir frábæra fyrirgjöf Gustav Isaksen sem var afar líflegur á hægri kantinum.
Norðmenn tóku að sækja í kjölfarið og skoraði Erling Haaland eftir hornspyrnu, en markið ekki dæmt gilt því framherjinn stóri skallaði boltann í hendina á sér áður en hann fór í netið. Haaland skoraði þó löglegt mark skömmu síðar, eftir skelfileg mistök hjá Mads Hermansen markverði.
Hermansen reyndi að leika á Martin Ödegaard sem kom upp í góða pressu og vann boltann. Fyrirliði Arsenal var svo gjafmildur og leyfði Haaland að klára færið í autt markið.
Haaland var afar ólíkur sjálfum sér í síðari hálfleik þegar hann klúðraði fjórum mjög góðum færum áður en Ödegaard jafnaði metin á lokakaflanum. Gestirnir frá Noregi héldu áfram að sækja og fengu dæmda vítaspyrnu á síðustu sekúndum uppbótartímans. Haaland steig á vítapunktinn og bætti upp fyrir öll klúðrin með því að skora örugglega framhjá Hermansen.
Þetta dramatíska sigurmark tryggir Norðmönnum annað sæti riðilsins og fara þeir því í úrslitakeppnina. Frændur þeirra frá Danmörku enda í þriðja sæti og gætu þurft að fara í gegnum umspil til að halda sæti sínu í A-deild.
Á sama tíma hafði Portúgal betur gegn lærlingum Craig Bellamy í fjörugum slag í Wales. Bruno Fernandes kom Portúgölum yfir snemma í jöfnum og skemmtilegum slag en David Brooks var fljótur að svara eftir frábæran undirbúning frá Rubin Colwill.
Sorba Thomas skoraði svo frábært mark til að koma Wales yfir þar sem hann spretti upp hálfan völlinn og stakk Pedro Neto af áður en hann kláraði með marki. Brooks átti laglega sendingu innfyrir vörnina til að gefa stoðsendinguna.
Gleði heimamanna lifði þó ekki lengi því Pedro Neto jafnaði muninn skömmu síðar eftir stórkostlegan undirbúning frá Francisco Trincao og var staðan 2-2 eftir fjörugan fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var áfram jafn en gæði Portúgala skinu í gegn þegar Carlos Forbs, leikmaður Club Brugge, kom inn af bekknum og skoraði eftir stórkostlegt einstaklingsframtak til að endurheimta forystu Portúgal. Skömmu síðar fékk Pedro Neto þó tvö verðskulduð gul spjöld með stuttu millibili svo Portúgalir þurftu að klára leikinn manni færri.
Wales tókst ekki að jafna metin á síðustu 20 mínútunum gegn tíu Portúgölum svo lokatölur urðu 2-3. Portúgal vinnur riðilinn með 15 stig úr 6 umferðum og endar Wales í neðsta sæti.
Danmörk 2 - 3 Noregur
1-0 Rasmus Hojlund ('11 )
2-0 Pierre-Emile Hojbjerg ('14 )
2-1 Erling Haaland ('37 )
2-2 Martin Odegaard ('83 )
2-3 Erling Haaland ('96)
Wales 2 - 3 Portúgal
0-1 Bruno Fernandes ('11 )
1-1 David Brooks ('13 )
2-1 Sorba Thomas ('40 )
2-2 Pedro Neto ('43 )
2-3 Carlos Forbs ('70 )
Rautt spjald: Pedro Neto, Portugal ('74)