Fotbolti.net
17.11.26 - 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vonar að vinur sinn vinni deildina - „Svekkjandi að Róbert hafi meiðst"

Róbert Frosti stimplaði sig inn í byrjunarlið GAIS og lék virkilega vel fram að meiðslunum.

Róbert Frosti stimplaði sig inn í byrjunarlið GAIS og lék virkilega vel fram að meiðslunum.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling ræddi við Fótbolta.net í dag um félagaskipti sín í Aftureldingu.

Tibbling, sem er 32 ára, er frá Stokkhólmi og hóf meistaraflokksferilinn hjá Djurgården. Þrátt fyrir að hafa búið á Íslandi síðustu tvö tímabil fylgist hann enn vel með sænsku úrvalsdeildinni.

Við Íslendingar eigum nokkra fulltrúa í deildinni. Hjörtur Hermannsson er lykilmaður í Gautaborg á meðan Kolbeinn Þórðarson hefur verið í minna hlutverki en áður, Róbert Frosti Þorkelsson tók stórt skref milli tímabila hjá GAIS og var í stóru hlutverki á tímabilinu áður en hann sleit krossband í byrjun september. Daníel Tristan Guðjohnsen var í mjög takmörkuðu hlutverki hjá Malmö, en það hefur orðið stærra seinni hluta tímabils.

Elfsborg er efsta Íslendingaliðið í deildinni, situr í fimmta sæti og Júlíus Magnússon er þar í lykilhlutverki, Ari Sigurpálsson kemur við sögu í öllum leikjum og Gabríel Snær Gunnarsson er í kringum hópinn.
Auðveld ákvörðun að semja í Mosó - „Stórt fyrir mig að vera hluti af þessu verkefni"
TENGT EFNI

Auðveld ákvörðun að semja í Mosó - „Stórt fyrir mig að vera hluti af þessu verkefni"

Tibbling var spurður út í deildina.

„Einn af bestu vinum mínum er að þjálfa hjá Sirius og þeir eru í 2. sæti núna í deildinni. Það væri gaman að sjá vin minn vinna deildina og ég vona að það gerist. Djurgården er svo í 3. sæti, það er því að ganga vel hjá liðunum sem ég held með," segir Tibbling en Sirius er með jafnmörg stig og Djurgården fyrir síðustu tær umferðirnar.

Hefur þú heyrt eitthvað af Íslendingunum sem spila í deildinni?

„Já, ég hef heyrt talsvert. Það var svekkjandi að Róbert (Frosti Þorkelsson) í GAIS hafi meiðst. Hann var að spila virkilega vel, sorglegt að hann varð fyrir alvarlegum meiðslum. Íslendingar eru almennt að gera nokkuð vel í deildinni og ég var mjög hrifinn af þróuninni sem varð á Róberti á þessu ári," segir Tibbling.
Tibbling vonar að Sirius vinni sænsku deildina.

Tibbling vonar að Sirius vinni sænsku deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjög hrifinn af þróuninni sem varð á Róberti á þessu ári

Mjög hrifinn af þróuninni sem varð á Róberti á þessu ári

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.