Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. júlí 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Everton hefur líka áhuga á Lingard
Mynd: Getty Images
Enski íþróttafréttamaðurinn Paul Joyce segir að Everton hafi áhuga á því að fá Jesse Lingard og hafi rætt við leikmanninn. Frank Lampard, stjóri Everton, er í leit að manni í stað Richarlison sem seldur var til Tottenham.

Lingard er án félags eftir að samningur hans við Manchester United rann út en tækifærin þar voru af skornum skammti.

Áhugi West Ham á Lingard er vel þekktur eftir vel heppnaða lánsdvöl Lingard hjá félaginu.

Í slúðurpakkanum í morgun var sagt að Hamrarnir þyrftu mögulega að treysta á að Lingard myndi lækka launakröfur sínar.


Athugasemdir
banner
banner
banner