Fotbolti.net
01.07.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Tuchel notar uppskrift Southgate í vítakeppnum

Thomas Tuchel ræðir við leikmenn sína.

Thomas Tuchel ræðir við leikmenn sína.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands segir að sitt lið muni nota sömu uppskrift og það gerði undir stjórn Gareth Southgate þegar kemur að vítaspyrnukeppnum.

England vann þrjár af fjórar vítakeppnum sem liðið fór í undir stjórn Southgate en þessi þáttur leiksins hafði áður lengi verið vandamál.
Vítakeppnir ekki lotterí
Undir stjórn Southgate var gengið út frá þeirri hugmyndafræði að vítaspyrnur væru ekki happdrætti, öflugur undirbúningur væri lykilatriði.

Liðið æfir vítaspyrnur reglulega og spyrnumenn eru ákveðnir með góðum fyrirvara, út frá æfingum. Þá lagði Southgate sig fram um að taka ábyrgðina af leikmönnum sínum og minnka pressuna.

Hverjum spyrnumanni var úthlutað einum „félaga“ sem tók á móti honum við miðlínuna eftir gönguna til baka í vítakeppnina. Þetta er gert með þeirri hugmyndafræði að dreifa pressunni.

Þá hefur markvörðurinn Jordan Pickford fengið ítarlega vítaspyrnuskýrslur frá þjálfarateymum en hann var með punkta skrifaða á vatnsbrúsann sinn.

Gleymdi að búa sig undir vítakeppni
Tuchel viðurkenndi að árið 2016 hafi hann gleymt að undirbúa Borussia Dortmund undir þann möguleika að bikarúrslitaleikurinn gegn Bayern München gæti endað í vítakeppni.

Leikurinn endaði 0-0 en Bayern vann 4-3 í vítakeppni þar sem Tuchel þurfti að raða spyrnumönnum með stuttum fyrirvara.

„Þetta var virkilega sársaukafull reynslu og skildi eftir ör á mér. Mér leið svakalega illa yfir því að hafa brugðist sjálfum mér. Þetta mun aldrei gerast aftur," segir Tuchel.

England mætir Kongó í 32-liða úrslitum HM í dag klukkan 16 en sigurliðið mun leika gegn Mexíkó í næstu umferð.
Harry Kane skoraði úr víti gegn Króatíu.

Harry Kane skoraði úr víti gegn Króatíu.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel.

Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.