Fotbolti.net
30.06.26 - 22:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Áfall fyrir Brasilíu

Áfall fyrir Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Lucas Paqueta, miðjumaður brasilíska landsliðsins, verður líklega ekki með liðinu gegn Noregi í 16-liða úrslitum á HM vegna meiðsla.

Brasilía komst í 16-liða úrslitin eftir sigur á Japan í gær en Paqueta þurfti að fara af velli í hálfleik.
Brasilíska sambandið staðfesti í dag að hann væri meiddur aftan í læri og hann mun gangast undir ítarlega meðferð undir eftirliti brasilíska læknateymisins.

Paqueta hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins til þessa.

Liðið mætir Noregi í 16-liða úrslitum en Noregur lagði Fílabeinsströndina í dag þar sem Erling Haaland skoraði sigurmarkið undir lokin í 2-1 sigri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.