Fotbolti.net
01.07.26 - 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Þórir Jóhann til Feneyja (Staðfest)

Þórir Jóhann til Feneyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Venezia

Þórir Jóhann Helgason (2000) er nýr leikmaður ítalska félagsins Venezia en hann kemur á frjálsri sölu frá Lecce þar sem hann hefur verið síðustu fimm árin, en sumarið 2021 var hann keyptur af FH. Miðjumaðurinn skrifar undir þriggja ára samning. Þórir hafði verið orðaður við Venezia í janúarglugganum og er nú mættur til Feneyja.

Venezia fór upp úr ítölsku B-deildinni í vetur og verður því í Serie A, úrvalsdeildinni, á komandi tímabili. Liðið féll úr úrvalsdeildinni tímabilið 2024/25.

Hafnfirðingurinn spilaði 72 leiki með Lecce, skoraði eitt mark og lagði upp fimm. Tímabilið 2023/24 var hann á láni hjá Eintracht Braunschweig í Þýskalandi og kom þar að sjö mörkum í 27 leikjum.

Alls á Þórir Jóhann að baki 41 leik í efstu deild á Ítalíu en á liðnu tímabili kom hann einungis við sögu í átta deildarleikjum þegar Lecce náði að halda sæti sínu í efstu deild. Þórir Jóhann á að baki 20 A-landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk. Síðast var Þórir í landsliðshópnum í október í fyrra.
Hjá Venezia hittir Þórir Jóhann fyrir jafnaldra sinn, Bjarka Stein Bjarkason, sem hefur verið hjá Venezia í sex ár.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn í félag sem er með svona traust og metnaðarfullt verkefni. Allt við þetta nýja ævintýri heillar mig: félagið, þjálfarateymið, borgin og aðdáendurnir, sem fylla alltaf völlinn og geisla af ótrúlegri ástríðu. Ég kem inn með mikinn eldmóð og löngun til að vera strax tiltækur fyrir þjálfarann ??og liðið, tilbúinn að vinna á hverjum degi að því að vaxa og gefa allt mitt á æfingum og í leikjum. Ég get ekki beðið eftir að hefja tíma minn hér og fara út á völlinn í treyjunni til að hjálpa Venezia að ná markmiðum sínum," er haft eftir Þóri Jóhanni í tilkynningu félagsins.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Þórir Jóhann til Feneyja (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.