Fotbolti.net
01.08.20 - 19:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Joey Barton: Verðum að fara aftur í alvöru fótbolta

Joey Barton.

Joey Barton.

Canon

Mynd: Getty Images

Joey Barton, stjóri Fleetwood, er búinn að fá sig fullsaddann af VAR myndbandsdómgæslu.

VAR hefur ekki fengið góða dóma í enska boltanum í vetur, og í sumar.

Tilgangurinn með VAR er að breyta augljósum mistökum dómara. Það hefur oft á tíðum ekki verið gert og stundum hafa dómar sem ekki eru augljósir verið breytt og til dæmis um það eru handakrikarangstöður.
VAR gerði ekki mikið í úrslitaleik enska bikarsins í kvöld. Mateo Kovacic fékk að líta tvö gul spjöld og var það síðara fáránlegt. Þá vildi Arsenal fá rauða spjaldið á Cesar Azpilicueta í fyrri hálfleik og stuðningsmenn Chelsea aukaspyrnu á Emiliano Martinez, markvörð Arsenal, þegar hann virtist grípa boltann utan teigs seint í leiknum.

Barton, sem var grjótharður miðjumaður á sínum leikmannaferli, er búinn að fá nóg af VAR og segir að kerfið eigi að hverfa.

„Við verðum að fara aftur í alvöru fótbolta. Harðan en sanngjarnan. Þetta VAR er bull. Þessir dómarar í Stockley Park verða að fara. Það er búið að reyna þetta og það mistókst," skrifar Barton á Twitter.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.