Fotbolti.net
02.10.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kristian skoraði í stórsigri

Kristian skoraði í stórsigri
Canon

Mynd: EPA

Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki valinn í landsliðshópinn þar sem hann hefur verið meiddur í rúman mánuð.

Hann sneri aftur á völlinn í dag þegar Twente rúllaði yfir Werder Bremen 7-0 í æfingaleik. Kristian spilaði fyrri hálfleikinn en staðan var 6-0 í hálfleik. Hann skoraði þriðja mark liðsins.
Júlíus Magnússon, Ari Sigurpálsson og Gabríel Snær Gunnarsson komu allir við sögu í 1-0 tapi Elfsborg gegn Hacken. Sævar Atli Magnússon var í byrjunarliði Brann sem tapaði 2-1 gegn Start.

Daniel Ingi Jóhannesson var í byrjunarliði Kolding sem vann 5-4 sigur á OB.

Hinrik Harðarson og Breki Baxter komu inn á þegar Egersund steinlá 5-0 gegn Ranheim í næst efstu deild í Noregi. Egersund er í 9. sæti með 29 stig eftir 24 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.