Real Zaragoza er á leið í umspil um síðasta lausa sætið í efstu deild spænska boltans.
Þar verður félagið án síns helsta markaskorara, Luis Suarez, sem gerði 19 mörk í 38 deildarleikjum á leiktíðinni.
Það er vegna þess að Watford hafnaði beiðni félagsins um að framlengja lán sóknarmannsins um nokkrar vikur svo hann gæti tekið þátt í umspilinu mikilvæga með Zaragoza.
Suarez á hins vegar ekki nema eitt ár eftir af samningi sínum við Watford en óljóst er hvað enska félagið ætla að gera við hann.
Watford féll úr ensku úrvalsdeildinni á lokadegi deildartímabilsins og gæti reynt að selja Suarez fyrir 10-15 milljónir evra. Suarez er 22 ára gamall og gæti reynt að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið ef hann verður ekki seldur.
Athugasemdir