Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. ágúst 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maddison eignaðist son í gær
Mynd: Getty Images
Leicester mætti QPR í æfingarleik í gær, leikurinn endaði með 3-3 jafntefli.

James Maddison var ekki í hóp Leicester og fóru sögusagnir af stað um að hann væri við það að ganga til liðs við Arsenal.

Maddison fékk hinsvegar frí vegna þess að kærastan hans átti von á barni.

Leikurinn fór fram kl 14 í gær og það var síðan rétt fyrir klukkan 19 sem Maddison sagði frá því á Twitter síðu sinni að hann hafi eignast son.


Athugasemdir
banner
banner