Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. ágúst 2021 18:58
Victor Pálsson
Reynir að fá samningnum við Arsenal rift
Mynd: Getty Images
Sead Kolasinac, leikmaður Arsenal, er sagður vera að reyna að fá samningi sínum við enska félagið rift.

Sead Kolasinac, leikmaður Arsenal, er sagður vera að reyna að fá samningi sínum við enska félagið rift.

Kolasinac er 28 ára gamall bakvörður en hann lék með Schalke í Þýskalandi á láni á síðustu leiktíð þar sem illa gekk.

Arsenal hefur keypt Nuno Tavares frá Benfica í sumar og spilar hann í vinstri bakverði líkt og Kolasinac.

Kolasinac hefur ekki trú á því að hann fái að spila í vetur og vonast til að Arsenal hleypi honum annað á frjálsri sölu.

Ef það tekst þá mun Kolasinac líklega semja við Fenerbahce og spila á ný með Mesut Özil sem er í herbúðum liðsins.

Arsenal gæti íhugað þessa lausn en Kolasinac fær um 100 þúsund pund í laun á viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner