Fotbolti.net
01.09.15 - 16:35
Arnar Geir Halldórsson

DeAndre Yedlin lánaður til Sunderland (Staðfest)

DeAndre Yedlin

DeAndre Yedlin

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið bandaríska bakvörðinn DeAndre Yedlin lánaðan frá Tottenham.
Þessi skotfljóti varnarmaður hefur aðeins spilað einn leik fyrir Tottenham eftir að hann kom til félagsins frá Seattle Sounders í janúar síðastliðnum.

Hann mun leika með Sunderland á þessu tímabili en lánssamningurinn er til eins árs.

Yedlin hefur leikið 23 landsleiki fyrir Bandaríkin en hann er 22 ára gamall.

Hann er annar varnarmaðurinn sem færir sig frá Tottenham til Sunderland í sumar en Younes Kaboul fór sömu leið í síðasta mánuði.

#SAFC have completed the #DeadlineDay loan signing of full-back DeAndre Yedlin from @SpursOfficial. #WelcomeDeAndre pic.twitter.com/OhetPcRCzJ

— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) September 1, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.