Fotbolti.net
01.09.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Zaccardo og Borriello til Carpi (Staðfest)

Borriello og Ronaldinho voru samherjar hjá AC Milan

Borriello og Ronaldinho voru samherjar hjá AC Milan

Canon

Mynd: Getty Images

Vörnin hjá AC Milan lítur ekkert sérstaklega vel út fyrir komandi tímabilið en félagið var að ljúka við sölu á Cristian Zaccardo til nýliða Carpi.

Gabriel Paletta var lánaður til Atalanta og Adil Rami seldur til Sevilla en Alessio Romagnoli var keyptur frá Roma fyrir 25 milljónir evra og er búist við miklu af honum.
Þá var Carpi einnig að staðfesta kaup á Marco Borriello, sóknarmanni Genoa.

Carpi er búið að tapa tveimur fyrstu leikjum tímabilsins í deildinni, 5-2 gegn Sampdoria á útivelli og 2-1 heima gegn Inter.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.