Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
Bjarni Jó: Heppnaðist illa og ég tek það á mig
Siggi Höskulds: Erum að spyrja fullt af spurningum
Gylfi Tryggvason: Svo kemur Lotta bara með einhverja töfra
Karlotta: Ég er bara stolt af liðinu og þetta var góður sigur
John Andrews: Stundum þegar þú ert að spila hræddur þrýstir þér það upp á næsta stig
Óli Kristjáns: Bara feikilega ánægður
Álfa: Við viljum bara komast í úrslit
Eva Stefánsdóttir: Gríðarlega flott FH lið
Natasha: Sögðu bara að við ættum að rífa okkur í gang
Óskar með hausverk fyrir næsta leik: Sagði bara 'af hverju?'
Bryndís Rut: Extra sætt að hefna fyrir tapið í deildinni
Ída Marín: Uppáhalds skotið mitt er að vippa, geri það mikið í Bandaríkjunum
Jóhannes Karl: Þessar breytingar voru allar ósköp eðlilegar
Ali líður vel í Víkinni: Vona að ég get gefið til baka
Heimir fann lausn: Ekki gefa boltann á slæmum stöðum
Sölvi um mörkin: Þetta var góð pressa
Fékk svarið sem hann vildi fá - „Menn setjist á bekkinn og hugsi sinn gang"
Upplifði ógnvekjandi tíma í vetur - „Mjög þakklátur miðað við hvar maður var"
Æsingur eftir leik - „Illa að okkur vegið að saka okkur um að tefja"
Grímsi ósáttur að hafa verið bekkjaður - „Fáránlegt"
   sun 01. september 2024 22:51
Kári Snorrason
Þorsteinn Aron: Fyrsta skipti sem við höldum hreinu í meira en ár
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK fékk Fram í heimsókn í Kórinn fyrr í kvöld, leikar enduðu með 1-0 sigri heimamanna, mark HK skoraði Þorsteinn Aron Antonsson undir lok leiks. Með sigrinum komu HK sér úr fallsæti. Markaskorarinn kom í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: HK 1 -  0 Fram

„Það er fátt skemmtilegra en að vinna 1-0 og halda hreinu. Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum hreinu í meira en ár, mjög sætt."

Framarar fengu vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks eftir að boltinn fór í hendina á Þorsteini í teig HK.

„Tilfinningin var geðveik, sérstaklega eftir að hafa fengið þetta víti á sig. Þótt mér fannst þetta aldrei vera víti, mér fannst ég vera með hendurnar alveg upp við líkamann."

„Ég held að liðsheildin hafi silgt þessu heim. Þetta gefur okkur sjálfstraust inn í úrslitakeppnina og næsta leik gegn Blikum.
Við bíðum spenntir eftir þeim leik, HK hefur sýnt að þeir kunni að vinna Blika og gert það oft undanfarið."


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner