31.08.26 - 22:09
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool búið að selja Bajcetic (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Celta Vigo er búið að festa kaup á Stefan Bajcetic, 21 árs miðjumanni sem kemur úr röðum Liverpool.

TENGT EFNI
Miðjumaður Liverpool aftur á heimaslóðir
Bajcetic er uppalinn hjá Celta en var fenginn yfir til Liverpool í desember 2020, þegar hann var aðeins 16 ára gamall.
Celta borgar aðeins 1,5 milljón evra til að kaupa Bajcetic og geta árangurstengdar aukagreiðslur bæst ofan á verðmiðann. Hann gerir þriggja ára samning við spænska félagið og heldur Liverpool endurkaupsrétti auk hlutfalls af endursöluvirði leikmannsins.
Bajcetic þótti gríðarlega efnilegur og spilaði 19 leiki undir stjórn Jürgen Klopp tímabilið 2022-23, en hefur verið að glíma við tíð meiðslavandræði síðan þá. Hann á fimm leiki að baki fyrir U21 landslið Spánar og þrjá fyrir U18 liðið.

Stefan Bajcetic has completed a permanent transfer from Liverpool to Celta Vigo.
— Liverpool FC (@LFC) August 31, 2026
Everyone at LFC wishes Stefan the best of luck for the future ??
???? https://t.co/YkjVQ2fnnM pic.twitter.com/NukRuLVBEk