Fotbolti.net
31.08.26 - 23:21
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Höskuldur: Einhver æsifréttamennska sem er í gangi

Auglýsing
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já, bara þungt, þú veist. Þungt og ekki nógu gott,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, eftir 0-2 tap gegn Stjörnunni á heimavelli í kvöld. 

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 2 Stjarnan

„Aftur erum við að grafa okkar eigin gröf með lélegum fyrri hálfleik og eftir það erum við að elta, og reynum að setja þá undir þrýsting og kasta meiri þunga á þá í seinni hálfleik. Við erum klaufar að fara illa með góð færi þannig að við gerðum okkur bara sjálfir erfitt fyrir með því að mæta ekki nóg og vel til leiks,“ hélt hann svo áfram.

Höskuldur, sem er Bliki í húð og hár, hefur séð tímana tvenna með félaginu. Hvernig metur hann þetta tímabil hingað til?

„Jú, auðvitað er maður búinn að vera lengi að og eins og þú segir auðvitað upplifað allt rófið ef svo má segja. Ég met það svo sem bara, eins og ég segi, þetta hefur verið sveiflukennt. Það hafa komið góðir kaflar, slæmir kaflar, innan leikja en líka bara heilt yfir. Núna erum við bara ekki á góðu skriði, við þurfum að reyna að snúa því við og reyna að finna takt og reyna að tengja saman góðar frammistöður og það er einfaldlega bara, maður getur ekkert annað en tekið bara einn leik í einu og eina æfingarviku í einu til þess að moka sig upp úr smá holu.“

Blikar eiga næst leik gegn KA og eftir það spila þeir í úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Aftureldingu. Höskuldur á ennþá eftir að vinna bikarkeppnina með Blikum sem hlýtur að vera eitthvað sem hann dreymir um

„Jú, auðvitað. Það verður bara skemmtilegt að fá þann leik en maður leyfir sér ekki einu sinni að horfa til hans fyrr en það er komið að honum. Verkefnið núna er náttúrulega bara sækja í betri og heilsteyptari frammistöður. Ég tala nú ekki um með þann leik handan við hornið, þá viltu koma af góðum leik, inn í þann leik. Það er einfaldlega bara núna KA úti, síðasti leikur áður en að deildin skiptist og það er bara verkefnið, næsta æfingarvika.“

Það hefur verið slúðrað um það síðustu daga og vikur að Höskuldur og liðsfélagi hans, Viktor Örn Margeirsson, muni elta sinn gamla þjálfara á Hlíðarenda og spila fyrir Val á næsta tímabili. Aðspurður hvort hann geti eitthvað tjáð sig um þessar fréttir segir hann:

„Nei ekkert frekar en þú. Það er bara einhver æsifréttamennska sem er í gangi, ekkert frá mér um það.“

Viðtalið við Höskuld má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.