31.08.26 - 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea losar sig við Fofana (Staðfest)

Fofana kom við sögu í fjórum keppnisleikjum með Chelsea eftir að hafa gert góða hluti með Molde í Noregi.

Mynd: EPA

Fofana kom við sögu í fjórum keppnisleikjum með Chelsea eftir að hafa gert góða hluti með Molde í Noregi.

Mynd: EPA
Chelsea tókst loksins að selja David Datro Fofana eftir þrjú og hálft ár hjá félaginu.

TENGT EFNI
Ótrúlegt offramboð af leikmönnum í Chelsea
Úrvalsdeildarfélagið festi kaup á Fofana í vetrarglugganum tímabilið 2022-23 og borgaði rúmlega 10 milljónir punda fyrir framherjann.
Fofana stóðst engan veginn þær væntingar sem til hans voru gerðar og mistókst að láta til sín taka þegar hann var lánaður út til hinna ýmsu félaga víðsvegar um Evrópu.
Fofana fer til Servette sem leikur í efstu deild í Sviss. Chelsea fær um 2 milljónir punda fyrir, með auka milljón í árangurstengdar aukagreiðslur. Fofana gerir fjögurra ára samning við svissneska félagið.

David Fofana has completed a permanent transfer to Swiss Super League side Servette.
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 31, 2026
We thank David for his efforts during his time at Chelsea and wish him well as he begins a new chapter in his career. pic.twitter.com/0R82ja5fCq