Fotbolti.net
31.08.26 - 21:19
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Þægilegt fyrir Stjörnuna á Kópavogsvelli

Besta deildin: Þægilegt fyrir Stjörnuna á Kópavogsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
0-1 Guðmundur Kristjánsson ('29)
0-2 Birnir Snær Ingason ('40)
Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
Breiðablik og Stjarnan áttust við í eina leik kvöldsins í Bestu deild karla og fór leikurinn fjörlega af stað. Liðin skiptust á að sækja þar til Guðmundur Kristjánsson skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Benedikt V. Warén á 29. mínútu.

Leikið var á Kópavogsvelli og tóku gestirnir úr Garðabæ völdin eftir opnunarmarkið. Birnir Snær Ingason lagði upp gott færi og skoraði skömmu síðar eftir góðan undirbúning frá Örvari Eggertssyni.

Staðan var því 0-2 í leikhlé eftir afar slakan fyrri hálfleik heimamanna. Síðari hálfleikurinn var svo afar tíðindalítill þar sem Blikar sköpuðu sér lítið sem ekkert. Þeir vildu fá vítaspyrnu í uppbótartíma en fengu ekki og urðu lokatölur 0-2.

Stjarnan jafnar ÍA á stigum með þessum sigri og eru liðin í harðri baráttu um að enda í efri hluta deildarinnar fyrir tvískiptingu. Stjarnan er með 27 stig fyrir lokaumferðina, aðeins þremur stigum á eftir Blikum sem sitja í fjóroða sæti.
Besta deildin: Þægilegt fyrir Stjörnuna á Kópavogsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.