Fotbolti.net
01.09.26 - 06:37
Ívan Guðjón Baldursson

Tómas Bent orðaður við enska boltann

Gluggadagurinn er í dag.

Gluggadagurinn er í dag.

Canon

Mynd: Gleðjum Saman

Fjölmiðlar frá Edinborg, höfuðborg Skotlands þar sem fótboltafélagið Hearts spilar heimaleiki sína, greina frá miklum áhuga á nokkrum leikmönnum Hearts.
Tómas Bent Magnússon er einn af fimm leikmönnum sem hafa vakið mikinn áhuga erlendis frá og er hann meðal annars orðaður við félög frá Englandi.

Ekkert félag er nefnt á nafn en Tómas Bent er 24 ára miðjumaður með tvö ár eftir af samningi við Hearts, sem tók afar óvænt þátt í skosku titilbaráttunni á síðustu leiktíð. Tómas og félagar komust hársbreidd frá því að vinna Skotlandsmeistaratitilinn, en enduðu í öðru sæti eftir mikla dramatík.

Tómas missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla en hann lék allan leikinn á miðjunni hjá Hearts í sigri gegn St. Johnstone á dögunum og var meðal bestu leikmanna vallarins, eftir að hafa skorað gegn Benfica fyrir tveimur vikum.

Tómas gekk til liðs við Hearts úr röðum Vals í fyrrasumar.

Gríska stórveldið Panathinaikos er einnig meðal áhugasamra félaga og er talið að Hearts vilji um 2 milljónir evra fyrir Tómas, sem er margfalt hærri upphæð en kaupverðið sem skoska félagið borgaði til Vals fyrir leikmanninn.
Tómas Bent orðaður við enska boltann
Canon

Mynd: Hearts

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.