01.09.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valur vill ekki selja Dag Orra - Fer ekki til Danmerkur

Er á sínu fyrsta tímabili sem leikmaður í stóru hlutverki í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og Fótbolti.net greindi frá í síðustu viku vildi danska félagið Fredericia kaupa Dag Orra Garðarsson af Val. Ekkert verður hins vegar úr því að Dagur fari til félagsins.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði Fredericia mikinn áhuga og gerðu tilboð en Valur vildi ekki selja Dag á þessum tímapunkti. Fredericia féll úr dönsku úrvalsdeildinni í vor og er því í næstefstu deild í Danmörku.
Dagur er 21 árs framherji sem uppalinn er hjá Stjörnunni og kom þaðan á frjálsri sölu í vetur eftir að hafa verið á láni hjá HK á síðasta tímabili.

TENGT EFNI
Fredericia vill fá Dag Orra
Hann hefur spilað tólf leiki með Val í Bestu deildinni, skorað þrjú mörk og lagt upp eitt.
Valur er sem stendur í 8. sæti Bestu deildarinnar. Liðið þarf að vinna Keflavík í 22. umferðinni og treysta á að bæði Stjarnan og ÍA tapi svo liðið endi í efri hlutanum fyrir tvískiptingu. Sjö stig eru frá Val niður í fallsæti þegar sex umferðir eru eftir af mótinu.