21.10.26 - 22:56
Brynjar Ingi Erluson
Carragher hraunar yfir Fernandes - „Hann er með hræðilegt viðhorf“

Michael Carrick og Fernandes skutu á hvorn annan

Mynd: EPA

Bruno Fernandes

Mynd: EPA

Jamie Carragher

Jamie Carragher, sérfræðingur hjá CBS, lætur Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, heyra það eftir ummæli hans í kjölfar 4-1 tapsins gegn Como í kvöld.

TENGT EFNI
Carrick svarar Bruno: Ef þú ert ekki tilbúinn að hlaupa ertu ekki að fara að vinna fótboltaleiki
Fernandes gagnrýndi Michael Carrick, stjóra United, fyrir leikskipulagið gegn Como og taldi að liðið hefði ekki pressað á réttan hátt.
Carrick svaraði gagnrýninni á fréttamannafundi þar sem hann benti á að sama hvaða leikkerfi væri notað þyrftu leikmenn að vera tilbúnir að hlaupa til að vinna fótboltaleiki.
Carragher var ánægður með að Carrick hefði svarað fyrir sig og gagnrýndi um leið viðhorf Fernandes harðlega.
„Það er skammarlegt af Bruno Fernandes að gera þetta. Þegar maður hugsar til síðasta tímabils þá var hann valinn besti leikmaður ársins og það gerðist eftir að Michael Carrick tók við liðinu. Hann hefði ekki unnið þessi verðlaun án Carrick.“
„Carrick kom honum aftur í sína eðlilegu stöðu og hann átti stórkostlegt tímabil. Hann er auðvitað frábærlega hæfileikaríkur fótboltamaður.“
„Það er enginn vafi á hæfileikum hans, en þegar kemur að viðhorfinu og því hvernig hann hagar sér er þetta alls ekki í lagi. Hann ákvað að bregðast svona við vegna þess að honum var skipt af velli.“
„Þetta er hræðilegt viðhorf og alls ekki það sem fyrirliði Manchester United á að standa fyrir,“sagði Carragher.
Carragher telur þó að dagar Carrick hjá United séu taldir og að félagið muni enn á ný skipta um stjóra.
„Hvað hefur Bruno verið með marga stjóra? Fimm? Þeir skipta um stjóra á hverju einasta tímabili. Manchester United er rotið frá toppi til táar og ég hef áður sagt að vandamálið sé ekki bara stjórinn heldur allt sem viðkemur félaginu.“
„Það er engin spurning að félagið þarf nú að skipta um stjóra, en ég er ánægður með að Carrick hafi stigið fram og sagt þetta um Bruno, að hann sé ekki að hlaupa nægilega mikið.“
„Enginn er að halda því fram að Carrick sé einn besti þjálfari Evrópu, en hann kom félaginu sínu til hjálpar þegar hann var sjálfur án starfs. Ástæðan fyrir því að United er í Meistaradeildinni er Carrick að þakka.“
„Ég finn svolítið til með honum því hann er goðsögn hjá félaginu sem leikmaður. En þetta er einfaldlega ekki að ganga upp hjá honum sem stjóra og það þarf að breytast,“ sagði Carragher í lokin.

"For Bruno Fernandes, it's a disgrace, really." ????
— CBS Sports Golazo ?? (@CBSSportsGolazo) October 21, 2026
@Carra23 doesn't hold back on the Manchester United captain after Bruno questioned Michael Carrick's tactics following their defeat to Como ????? https://t.co/7KpJR3RT9O

Bruno Fernandes

Mynd: EPA

Jamie Carragher

Mynd: EPA