Fotbolti.net
22.10.26 - 13:44
Elvar Geir Magnússon

Man Utd byrjað að skoða í kringum sig

Man Utd byrjað að skoða í kringum sig
Canon

Mynd: EPA

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Manchester United sé byrjað að líta í kringum sig að kostum í stjórastólinn. Michael Carrick haldi þó áfram sínu starfi eins og ekkert hafi í skorist og búist sé við því að hann stýri liðinu gegn Bournemouth á sunnudaginn.

Eddie Howe, Antonio Conte og Julian Naglesmann eru allir sagðir hafa augstað á starfinu.
Allt sem þú þarft að vita um þá sem koma til greina hjá Man Utd
TENGT EFNI

Allt sem þú þarft að vita um þá sem koma til greina hjá Man Utd

Heimildir BBC herma að Carrick hafi ekki verið látinn vita af neinum yfirvofandi breytingum eftir niðurlægjandi 4-1 tap gegn ítalska liðinu Como í gær.

Eftir leikinn lýsti Bruno Fernandes fyrirliði yfir efasemdum um upplegg Carrick og hans teymis. Leikmenn Manchester United eru í fríi í dag.

Sumir háttsettir menn hjá United eru þeirrar skoðunar að það að skipta svo reglulega um stjóra á undanförnum árum hafi ekki hjálpað neitt í að stöðva hnignun United og að leikmenn hafi brugðist Carrick með lélegri frammistöðu. Það þýði þó alls ekki að hann sé öruggur í starfi.

Howe, fyrrum stjóri Newcastle, er án félags eftir að hafa yfirgefið St. James' Park í sumar og er talinn líklegastur af veðbönkum. Conte og Nagelsmann eru einnig atvinnulausir. Unai Emery, stjóri Aston Villa, og Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, hafa einnig verið nefndir en það yrði erfitt að fá þá frá félögum sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.