Fotbolti.net
22.10.26 - 16:34
Kári Snorrason

Matthías hættir með Val eftir fallið (Staðfest)

Matthías hættir með Val eftir fallið (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Matthías Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Vals. Félagið tilkynnti um tíðindin fyrir skömmu og segir það um sameiginlega ákvörðun að ræða.

Valur féll á dögunum úr Bestu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið endaði í 9. sæti deildarinnar með 24 stig.
Matthías hefur stýrt liðinu síðustu tvö ár en þar áður hafði hann verið aðstoðarmaður Péturs Péturssonar með liðið.

Tilkynning Vals:
Matthías Guðmundsson lætur af störfum

Stjórn Knattspyrnudeildar Vals og Matthías Guðmundsson hafa komist að samkomulagi um að Matthías láti af störfum sem aðalþjálfari kvennaliðs félagsins. Þetta var sameiginleg niðurstaða beggja aðila að tímabilinu loknu.

Tímabilið olli okkur öllum vonbrigðum og niðurstaðan varð sú að liðið féll úr Bestu deildinni. Úrslitin féllu ekki alltaf með okkur í sumar en Matti lagði sig allan fram fyrir liðið og félagið.

Matti er góður og gegn Valsmaður og einn af okkar allra bestu sonum. Knattspyrnudeild Vals þakkar honum innilega fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta.
Takk fyrir þitt framlag, Matti!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.