Eden Hazard, leikmaður Real Madrid, verður frá keppni næstu þrjár til fjórar vikurnar vegna meiðsla.
Hazard átti að snúa aftur í lið Real Madrid gegn Real Valladolid í kvöld eftir meiðsli en þá meiddist hann aftur.
Hinn 29 ára gamli Hazard mun missa af næstu leikjum Real Madrid og hann gæti misst af El Clasico slagnum gegn Barcelona þann 24. október.

Hazard hefur verið mjög mikið meiddur síðan hann kom frá Chelsea í fyrrasumar og ekki náð að sýna mikið í treyju Real Madrid hingað til. Hann er að glíma við vöðvameiðsli í hægri fótlegg.
Athugasemdir