Fotbolti.net
01.10.20 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Roma vonast til að landa Smalling fyrir gluggalok

Roma vonast til að landa Smalling fyrir gluggalok
Canon

Mynd: Getty Images

Vonir Roma um að fá Chris Smalling frá Manchester United eru að aukast samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Hinn þrítugi Smalling stóð sig vel á láni hjá Roma á síðasta tímabili.

Roma hefur undanfarið unnið að því að fá Smalling aftur í sínar raðir og viðræður hafa gengið vel undanfarna daga.
Smalling hefur ekki verið í leikmannahópi Manchester United í fyrstu leikjum tímabilsins og góðar líkur eru á að hann fari til Roma áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

Smalling hefur sjálfur áhuga á fara aftur til Ítalíu og hann ætlar að gera þriggja ára samning við Roma ef allt gengur upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.