01.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hissa að Wirtz gangi illa: Valdi Liverpool út af loforði

Mynd: Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: Liverpool
Karl-Heinz Rummenigge, stjórnandi og goðsögn hjá FC Bayern, tjáði sig um Florian Wirtz á dögunum.

TENGT EFNI
Kemur ekki til greina að selja Wirtz
Wirtz var keyptur til Liverpool fyrir tæpar 140 milljónir evra í fyrrasumar en hefur ekki staðist væntingar á enska stórveldinu.
Wirtz gerði frábæra hluti hjá Bayer Leverkusen og gat meðal annars valið á milli Liverpool og FC Bayern.
„Ég er hissa að sjá Flo Wirtz í vandræðum. Hann valdi Liverpool út af því að (Arne) Slot lofaði að nota hann í hlutverki tíu liðsins, það er helsta ástæðan á bakvið ákvörðun hans um að velja Liverpool," sagði Rummenigge. „Það var ekki mikill munur á samningstilboðunum sem hann fékk á borðið. Hann tók þessa ákvörðun og við samþykktum það."
En gæti Wirtz skipt yfir til Bayern í framtíðinni?
„Ég veit það ekki, spurningin er hvort Wirtz sé hamingjusamur hjá Liverpool eða ekki. Ég get ekki dæmt um það.
„Við vorum í samskiptum við foreldra hans á tímabili en svo ákváðu þau að fara aðra leið og við sýndum þeirri ákvörðun virðingu."