Fotbolti.net
30.09.26 - 21:01
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeild kvenna: Glódís og stöllur héldu hreinu

Meistaradeild kvenna: Glódís og stöllur héldu hreinu
Canon

Mynd: Bayern München

Kvennaboltinn
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði FC Bayern, var á sínum stað í hjarta varnarinnar í þægilegum sigri gegn Benfica í Meistaradeild kvenna fyrr í kvöld.
Glódís lék allan leikinn er Bayern skoraði þrjú mörk og hélt hreinu í Lissabon. Þýskalandsmeistararnir er þar með komnar með fjögur stig eftir að hafa gert jafntefli við Manchester City í fyrstu umferð.

Bayern var talsvert sterkara liðið en staðan hélst markalaus allt þar til á lokakaflanum þegar Klara Bühl, Pernille Harder og Franziska Kett skoruðu eitt mark hver á fjórtán mínútna kafla.

Í hinum leik kvöldsins gerðu Lyon og Chelsea markalaust jafntefli, en Lyon tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa slegið Arsenal úr leik í undanúrslitum.

Það ríkti jafnræði í jöfnum og tíðindalitlum leik þar sem bæði lið fengu eitt gott færi til að skora, en nýttu ekki.

Bæði stórveldin eiga fjögur stig eftir sigra í fyrstu umferð.

Benfica W 0 - 3 Bayern
0-1 Klara Buhl ('74 )
0-2 Pernille Harder ('80 )
0-3 Franziska Kett ('88 )

Lyon 0 - 0 Chelsea
Meistaradeild kvenna: Glódís og stöllur héldu hreinu
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild kvenna: Glódís og stöllur héldu hreinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.