Fotbolti.net
30.09.26 - 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Daníel Tristan fyrir ofan menn úr ensku úrvalsdeildinni

Daníel Tristan fagnar marki í gær.

Daníel Tristan fagnar marki í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Daníel Tristan Guðjohnsen í undankeppninni fyrir Evrópumót U21 landsliða 2027.

Daníel Tristan er búinn að gera sér lítið fyrir og skora sex mörk í fjórum leikjum.

Þrjú af þessum mörkum hafa komið í tveimur leikjum í yfirstandandi verkefni; eitt mark beint úr aukaspyrnu gegn Frakklandi og svo tvö gegn Sviss í gær.
Daníel Tristan: Reyni að sýna hversu góður ég er hérna eða í A landsliðinu
TENGT EFNI

Daníel Tristan: Reyni að sýna hversu góður ég er hérna eða í A landsliðinu

Það eru tveir leikmenn í allri undankeppninni búnir að skora meira en Daníel Tristan. Það eru Nicolo Tresoldi, leikmaður Þýskalands og Club Brugge, og svo Sindre Walle Egeli, leikmaður Ipswich í ensku úrvalsdeildinni og norska U21 landsliðsins. Þeir hafa báðir skorað sjö mörk.

Daníel Tristan, sem spilar sjálfur fyrir Malmö í Svíþjóð, er fyrir ofan leikmenn sem eru byrja leiki í ensku úrvalsdeildinni. Gonzalo García, leikmaður Fulham, hefur skorað fimm mörk fyrir Spán og Mathys Tel, sem er á mála hjá Tottenham, hefur skorað fjögur mörk. Tel er einmitt leikmaður Frakklands sem er í riðli okkar Íslendinga.

Strákarnir í U21 landsliðinu eiga góðan möguleika á að komast í umspilið um sæti á Evrópumótinu. Þeir þurfa að vinna Færeyjar í lokaleik sínum í riðlinum og treysta á að Sviss vinni ekki Frakkland á sama tíma.
Daníel Tristan fyrir ofan menn úr ensku úrvalsdeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan: Reyni að sýna hversu góður ég er hérna eða í A landsliðinu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.