01.11.14 - 22:30
Grímur Már Þórólfsson
Arnþór Ari í Breiðablik (Staðfest)

Arnþór Ari Atlason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnþór Ari Atlason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnþór Ari Atlason hefur gert þriggja ára samning við Breiðablik. Arnþór er 21 árs gamall miðjumaður sem spilaði með Fram síðasta sumar en er uppalinn hjá Þrótti Reykjavík.
Hann á að baki um 70 leiki með Þrótti í deild og bikar og þá spilaði hann 20 leiki í Pepsí deildinni í sumar með Fram og skoraði í þeim 3 mörk.
Hann á að baki um 70 leiki með Þrótti í deild og bikar og þá spilaði hann 20 leiki í Pepsí deildinni í sumar með Fram og skoraði í þeim 3 mörk.
Hann hefur auk þess leikið tvo leiki með U19 ára landsliði Ísland og einn leik með U21 árs landsliðinu.
Breiðablik misstu fyrirliðann sinn í Finn Orra Margeirsson, en hann gekk til liðs við FH. Miklar vonir eru þó gerðar við Arnþór.
Breiðablik misstu fyrirliðann sinn í Finn Orra Margeirsson, en hann gekk til liðs við FH. Miklar vonir eru þó gerðar við Arnþór.
