15.11.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari kvennalandsliðsins aðstoðar við leitina að arftaka Pochettino

Emma Hayes mun hjálpa til við leitina á arftaka Pochettino

Mynd: EPA

Guardiola hefur verið orðaður við starfið en þó talið ólíklegt að hann taki við

Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino mun yfirgefa starf sitt sem þjálfari bandaríska landsliðsins á næstu dögum og er þegar hafin leit að arftaka hans.
Pochettino tók við bandaríska landsliðinu á síðasta ári og náði góðum árangri á heimsmeistaramótinu í sumar, sem varð til þess að honum var boðinn nýr samningur.
Hann hafði nýlega skrifað undir samninginn þegar tækifærið hjá Manchester United kom upp, en Argentínumaðurinn gat ekki látið það renna sér úr greipum. Enska félagið greiddi því upp samning hans við bandaríska fótboltasambandið.
Leitin að nýjum landsliðsþjálfara er þegar hafin og mun Emma Hayes, þjálfari bandaríska kvennalandsliðsins, aðstoða við að finna arftaka Pochettino.
Hún mun vinna að leitinni ásamt JT Batson, framkvæmdastjóra sambandsins, og Oguchi Onyewu, varaforseta íþróttasviðs þess, en sá síðarnefndi lék meðal annars með AC Milan á sínum tíma.
Pep Guardiola er sagður efstur á óskalista sambandsins, en afar ólíklegt þykir að hægt verði að sannfæra hann um að taka við landsliðinu eins og staðan er í dag.
Steve Cherundolo stýrir liðinu til bráðabirgða og mun sjá um æfingabúðir þess í næsta mánuði. Þar verða aðallega leikmenn úr MLS-deildinni, enda fara búðirnar fram utan alþjóðlegs landsleikjaglugga.