Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 01. nóvember 2019 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Iniesta: Ég myndi ekki leyfa Rakitic að fara
Mynd: Getty Images
Ivan Rakitic gæti verið á förum frá Barcelona og hefur verið orðaður við félög á borð við Inter, Juventus og Manchester United.

Rakitic er 31 árs miðjumaður og mun eiga 18 mánuði eftir af samningi sínum þegar vetrarglugginn opnar í janúar.

Andres Iniesta, leikmaður Vissel Kobe í Japan og fyrrum samherji Rakitic á miðjunni hjá Barcelona, telur að félagið ætti að halda króatíska landsliðsmanninum.

„Ég myndi ekki hleypa honum burt, hann er frábær leikmaður. Það sem hann hefur gert frá komu sinni til Barcelona er stórkostlegt," sagði Iniesta.

„Hann leikur ekki jafn mikilvægt hlutverk og áður en hann er ennþá gæðaleikmaður. Það væru mistök að selja hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner