01.11.26 - 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Segja að Carrick geti ekki treyst þremur leikmönnum

Bruno Fernandes er á listanum

Mynd: EPA

Það er ekki hægt að treysta á Martínez

Mynd: EPA

Mason Mount hefur ekki sýnt mikið í United-treyjunni

Mynd: EPA

Bruno Fernandes er á listanum

Mynd: EPA
Enski miðillinn Daily Express segir að Michael Carrick, stjóri Manchester United, geti ekki lengur treyst á þrjá leikmenn í hópnum.

TENGT EFNI
Carrick býst við að stýra næsta leik - „Hlutirnir ekki að falla með okkur“
United hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum í öllum keppnum og virðast nokkrir leikmenn liðsins lítið vera að hjálpa Michael Carrick í baráttunni við að koma liðinu aftur á rétta braut.
Tveir leikmenn hafa gagnrýnt félagið og þjálfarateymið opinberlega á síðustu vikum, en athygli vekur að þeir hafa sjálfir ekki staðið undir væntingum inni á vellinum.
Express bendir á þrjá leikmenn sem Carrick geti einfaldlega ekki treyst á í baráttunni fyrir því að halda starfi sínu.
Argentínumaðurinn Lisandro Martínez er fyrstur á listanum, en hann hefur verið afspyrnuslakur á tímabilinu og átti hreint út sagt skelfilegan leik í 2-0 tapinu gegn Chelsea í gær.
Martínez kastaði öllum áætlunum Carrick út um gluggann. Hann átti sinn þátt í fyrra marki Chelsea og skömmu síðar braut hann af sér innan vítateigs, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Brotið var með eindæmum heimskulegt, en Martínez hafði einnig gagnrýnt stjórn United fyrir nokkrum vikum og sakað félagið um metnaðarleysi á félagaskiptamarkaðnum. Það er ekki beinlínis það sem Carrick þarf á að halda þegar hann berst fyrir starfi sínu.
Fyrirliðinn Bruno Fernandes er annar á listanum. Hann var stórkostlegur á síðasta tímabili, en hefur verið skugginn af sjálfum sér á þessari leiktíð.
Carrick tók hann aftur inn í byrjunarliðið gegn Chelsea eftir að hafa látið hann dúsa á bekknum gegn Bournemouth í síðustu umferð. Ástæðan var gagnrýni Fernandes á þjálfarateymið nokkrum dögum áður.
Maður hefði haldið að Fernandes kæmi dýrvitlaus til leiks eftir bekkjarsetuna, en hann var nánast ósýnilegur gegn Chelsea fyrir utan eitt skot sem hann átti. Stuðningsmenn eru jafnvel farnir að velta því fyrir sér hvort fyrirliðinn vilji yfirgefa félagið.
Þriðji og síðasti leikmaðurinn á listanum er Mason Mount. Hann hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin ár, en náð að halda sér nokkuð heilum það sem af er þessu tímabili.
Þrátt fyrir það hefur hann aðeins byrjað þrjá leiki og United tapað þeim öllum, auk þess að fá á sig tíu mörk. Carrick virðist því ekki geta treyst á að Mount komi inn og breyti gangi leikja þegar mest á reynir.
Þessir þrír leikmenn eru auðvitað langt frá því að vera þeir einu sem þurfa að axla ábyrgð á slæmu gengi United og hæglega væri hægt að nefna fleiri í þessu samhengi. Eitt er þó ljóst. Það þarf allsherjarhreinsun hjá félaginu ef United ætlar sér að komast aftur á þann stað sem það telur sig eiga heima.