01.12.14 - 18:26
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir Marteins til ÍA (Staðfest)

Á meðfylgjandi mynd má sjá Magnús Guðmundsson, formann KFÍA, Ásgeir og Gunnlaug Jónsson, þjálfara handsala samninginn.

Mynd: Heimasíða ÍA

Ásgeir Marteinsson hefur samið við ÍA til tveggja ára en þetta er staðfest á heimasíðu félagsins.
Þessi tvítugi sóknarsinnaði leikmaður kemur frá Fram.

Hann lék lykilhlutverk hjá HK undir stjórn þjálfara ÍA Gunnlaugs Jónssonar sumarið á undan þar sem hann skoraði 10 mörk og lagði upp 8 mörk í 21 leik í 2. deildinni á sínu fyrsta heila tímabili í meistaraflokki.
„Ég er afar ánægður með að hreppa Ásgeir því hann er gríðarlega spennandi leikmaður með mikla hæfileika og kemur með ný vopn í sóknarleik liðsins. Hann getur leyst allar fjórar stöðurnar í sókninni og er einn af þeim leikmönnum sem gerir hið óvænta,” segir Gunnlaugur á heimasíðu ÍA.