01.12.14 - 14:04
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári búinn að semja hjá Bolton

Eiður er á leið í enska boltann á nýjan leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen hefur samþykkt samning hjá Bolton samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Enska félagið hefur ekki ennþá staðfest tíðindin en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er samkomulag í höfn. Talið er að samningurinn gildi út tímabilið á Englandi.

Bergur Guðnason, sonur Guðna Bergssonar fyrrum leikmanns Bolton, segir einnig að samningurinn sé í höfn á Twitter síðu sinni.
Eiður getur gengið strax til liðs við Bolton þó að félagaskiptaglugginn er lokaður þar sem hann er án félags í augnablikinu.
Eiður hefur æft með Bolton að undanförnu en hann spilaði einnig með varaliðinu gegn Bury í síðustu viku.
Næsti leikur Bolton í Champiponship deildinni er gegn Reading á laugardag og Eiður gæti spilað þann leik.

Eiður er búinn að skrifa undir (staðfest)
— Bergur Guðnason (@bergurgudna) December 1, 2014