Fotbolti.net
01.12.14 - 21:08
Ívan Guðjón Baldursson

Hilmar Trausti til KA (Staðfest)

Hilmar Trausti til KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Trausti Arnarsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við KA í fyrstu deildinni.

Hilmar er 28 ára gamall og getur spilað sem miðjumaður og vinstri bakvörður. Hilmar kemur frá Haukum, þar sem hann hefur leikið stærstan hluta ferilsins og verið fyrirliði síðustu tímabil.
Hilmar á 199 meistaraflokksleiki að baki og því gríðarlega reyndur leikmaður sem bætist við hópinn hjá KA.

KA endaði með 31 stig á síðasta tímabili í 1. deildinni á meðan Haukar enduðu sæti ofar með 32 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.