Fotbolti.net
01.12.14 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Joe Spivack í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Úr leik hjá BÍ/Bolungarvík í sumar.

Úr leik hjá BÍ/Bolungarvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

BÍ/Bolungarvík hefur samið við miðjumanninn Joey Spivack en þetta staðfesti Samúel Samúelsson formaður í samtali við Fótbolta.net í dag.
Spivack kom til Íslands í júlí síðastliðnum þegar hann gekk til liðs við Víking Ólafsvík.

Hinn 24 ára gamli Spivack skoraði tvö mörk í tíu leikjum í fyrstu deildinni í sumar.

Annað markið var af dýrari gerðinni en það var valið fallegasta markið í síðari umferðinni í 1. deildinni.

BÍ/Bolungarvík er að skoða frekari liðsstyrk en Samúel er nýkominn heim frá Bandaríkjunum þar sem hann skoðaði leikmenn í æfingabúðum Soccerviza.

Líklegt er að BÍ/Bolungarvík muni fá einhverja leikmenn að utan á reynslu eftir áramót.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.