Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 01. desember 2020 16:41
Magnús Már Einarsson
Berglind: Virkilega ljúft þegar hún flautaði af
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega ánægð með þessi þrjú stig. Það var markmiðið og við náðum því," sagði Berglind Björg Þorvaldsdóttir í viðtali við RÚV efir 1-0 sigur á Ungverjalandi í undankeppni EM í dag.

Berglind skoraði eina mark leiksins með þrumuskoti um miðbik síðari hálfleiks.

„Það er alltaf gaman að skora og tryggja þessi þrjú stig. Ég er gríðarlega ánægð með liðið í dag,"

„Við vorum með yfirhöndina allan tímann fannst mér en það var virkilega ljúft þegar hún flautaði af," sagði Berglind við RÚV.

Íslenska liðið bíður nú frétta úr öðrum leikjum til að sjá hvort að liðið verði eitt af þeim þremur liðum sem er með bestan árangur í 2. sæti í undankeppninni en það veitir þátttökurétt á EM í Englandi 2022.

Athugasemdir
banner
banner